Frjálsíþróttafélag HSÞ
Fréttir af starfi frjálsíþróttakrakka HSÞ


26.01.2012 20:44

Meistaramót 15 - 22 ára

Nú styttist í Meistaramót 15 - 22 ára en það verður haldið í Reykjavík helgina 4.  - 5. febrúar n.k.

Þeir sem ætla að taka þátt láti þjálfara vita á æfingu á mánudag.  

Nánar síðar.

26.01.2012 20:27

Hafdís með góðan árangur um helgina

Á heimasíðu www.641.is segir frá góðum árangri Hafdísar Sigurðardóttir á Reykjavík International Games sem fram fóru um síðastliðna helgi. Hafdís, sem nú keppir fyrir hönd UFA, vann sigur í langstökki kvenna. Bætti hún bæði sinn persónulega árangur og mótsmetið i greininni þegar hún stökk 6,14 m. Hafdís keppti einnig í 60 m hlaupi og varð í 3. sæti.

 

Hafdís tilkynnti félagaskipti úr Bjarma (HSÞ) yfir í UFA snemma í janúar. Að sögn Hafdísar var þessi ákvörðun um félagaskipti henni mjög erfið og hafði hún hugsað þetta vel og lengi áður en hún ákvað að skipta um félag. Hafdís telur sig betur setta hjá UFA enda stundar hún æfingar á Akureyri ásamt öðru frjálsíþróttafólki í UFA. Eins telur hún sig betur setta með að afla styrkja til þess að stunda sína íþrótt hjá UFA. Hún vildi þó taka það skýrt fram að hún sé og verði alltaf Þingeyingur og þakkar þeim fyrir sem hafa styrkt hana í gegnum tíðina hjá HSÞ.

 

Við þökkum Hafdísi sömuleiðis fyrir hennar framlag til frjálsra íþrótta hjá HSÞ og óskum henni velfarnaðar hjá nýju félagi.

23.01.2012 19:20

Stórmót ÍR

Stórmót ÍR verður haldið um næstu helgi, 28. - 29. janúar.

Farið verður með rútu frá bílastæðinu við Íþróttahöllina (Borgarhólsskóla) kl. 13:30 föstudaginn 27. janúar. Heimferð eftir keppni á sunnudag. Það eru um 20 keppendur skráðir til leiks. Brói og Selmdís fara með. Fararstjórar eru Sóley Sigurðardóttir (mamma Dagbjartar og Arnhildar) s: 895-6956 og Víðir Ingólfsson (pabbi Bjargeyjar og Eyþórs) s. 862 9822.

Kostnaður: Rútan kostar kr. 9.000.- Gisting í Laugardalnum kostar kr. 3.600.- (þurfa aðeins að taka með sér sængurver og lak). Vallarnesti og morgunmatur kr. 1.000.- Samtals á mann kr. 13.600.-

Borga fyrir miðvikudaginn 25. janúar á reikninginn okkar. 1110-05-400575, kt. 640409-0610.

Farangur: Nesti á leið suður, HSÞ keppnisbúningur, íþróttaskór og gaddaskór. Endilega HSÞ bolina (rauðu og bláu) ef þið eigið. Vasapeningur fyrir kvöldmat á laugardag (líklega verður pöntuð pizza) og heimferð á sunnudag.

Allt bakkelsi (kleinur, muffins og slíkt) vel þegið á völlinn. Látið fararstjórana vita ef þið komið með eitthvað slíkt með ykkur.

Það eru ennþá laus pláss í rútunni ef einhver fullorðinn vill skella sér með.


Góða ferð og áfram HSÞ

16.01.2012 20:32

Æfingabúðir 20. - 21. janúar

Eins og fyrr segir þá verða æfingabúðir á Laugum 20. - 21. janúar n.k. fyrir 11 ára og eldri. Æfingabúðirnar eru í umsjón Bróa og Selmdísar.

Dagskráin verður sem hér segir:

Föstudagur:

     Kl. 17:30. Æfingabúðir hefjast með æfingu.

     Kl. 19:00. Hlaðborð í Dalakofanum

     KL. ????. Gist verður í vallarhúsinu við íþróttavöllinn.

 

Laugardagur:

    Kl. ???   Morgunmatur    

    Kl. 10:00 - 12:30. Æfing.

     Matarhlé

     Kl. 14:00              Sund

     Kl. 16:00 Æfingabúðir enda.

Ef veður leyfir verður einnig æft úti.

 

Þátttaka tilkynnist á æfingu á miðvikudag, 18. janúar.

 

Hver og einn þarf að hafa með sér svefnpoka, sundföt, íþróttaföt úti og inni, nesti fyrir morgunmat og hádegismat (merkið nestið ykkar) og 2.500 kr. fyrir gistingu og hlaðborð á föstudagskvöldinu.

Við hvetjum foreldra til að sameinast með þátttakendur í bíla.

Sími hjá Bróa er 891 7849 og Selmdísi 865 5741

 

 

 

 

 

 

 

08.01.2012 17:32

Ýmislegt á döfinni í byrjun árs

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir það gamla!

Nú er búið að dreifa dagatölunum okkar og við hvetjum alla til að styrkja starf félagsins.

Á næstu vikum er ýmislegt á döfinni:

Helgina 20. - 21. janúar verða æfingarbúðir á Laugum í umsjón Bróa þjálfara. Stefnt er að þær byrji seinnipartinn á föstudeginum þann 20. og þeim ljúki seinnipartinn þann 21. Nánar um æfingarbúðirnar síðar.

Helgina 28. - 29. janúar verður Stórmót ÍR í Reykjavík. Mótið hefst kl. 9:00 á laugardeginum og því líkur upp úr miðjum degi á sunnudeginum. Það virðist vera ágætur áhugi hjá krökkunum að vera með og við hvetjum alla til að mæta á þetta fyrsta stórmót ársins. Það er verið að skoða að leigja rútu fyrir mannskapinn og gista saman á Farfuglaheimilinu. Þeir sem ætla að fara skulu láta vita sem fyrst á æfingu hvort þeir vilji vera með í rútu og/eða gista á Farfuglaheimilinu. Nánar um ferðatilhögun síðar.

Helgina 4. 5. febrúar verður Meistaramót 15-22 ára innanhúss haldið í Reykjavík og helgina 25. - 26. febrúar verður Meistaramót 11-14 innanhúss haldið, einnig í Reykjavík. Nánar um þessi mót síðar.

Eins og þið sjáið þá er nóg um að vera á næstunni.

 

28.12.2011 10:54

Næsta frjálsíþrótaæfing

Til kynning frá þjálfara enginn æfing verður milli jóla og ný árs því verður næsta æfing mánudaginn 2. janúar.
Dagatölin eru að vera klár, þeir sem geta mega endilega koma í Völsungsaðstöðuna í dag kl.16:30 og aðstoða að pakka þeimemoticon
Svo verður haft samband við ykkur að dreifa þeim í hús hér á Húsavíkemoticon
Óskum ykkur gleðilegra jóla og gleðilegs nýs árs.
 Frjálsíþróttaráð HSÞ

18.12.2011 21:55

jólatarsan

Á morgun verður Jólatarsan hjá Bróa en síðasta æfing fyrir jól verður á miðvikudaginn.  Jólapúkk (max 500 kr.) piparkökur og djús eftir æfingu.  Foreldrum boðið að kíkja við á þiggja kaffi/djús og piparkökur.d

Yngri hópurinn fór í jólafrí síðasta mánudag þar sem var farið í jólatarsan, fengið sér piparkökur og djús.  Þó nokkrir foreldrar kíktu við í kaffi og piparkökur. 

Ymis HSÞ varningur er til á lager;
HSÞ peysur st. 128-140 og 152  2000 kr
HSÞ sokkar st. 33-35 0g 40-43  1500 kr. (3 í pakka)
Hlífðargalli st. 120, 140, 150, 170 S, M L, Xl, XXL    (bæði eldri og yngri útgáfa) 5000 kr
HSÞ bolir rauðir S, M, L, XL, XXL   1000 kr.
Þingeyinga bolir bláir M og XL  500 kr

Áhugasamir hafi samband við Ágústu í s. 820-2844

17.12.2011 23:01

Hafdís Sigurðardóttir í fremstu röð frjálsíþróttakvenna landsins.

Frétt af www.641.is

Frjálsíþróttakonan Hafdís Sigurðardóttir (HSÞ) er fremsta frjálsíþróttakona okkar Þingeyinga nú um stundir og er ein af bestu frjálsíþróttakonum landsins og hefur m.a verið í landsliði Íslands síðan 2005. Hennar aðalgrein er langstökk, en hún keppir líka í styttri hlaupagreinum. Hún hefur unnið marga sigra innanlands og náð góðum árangri á mótum erlendis. Hafdís var valin bæði valin frjálsíþrótta- og íþróttamaður ársins hjá HSÞ árin 2007 og 2008 og frjálsíþróttamaður ársins árið 2009.

http://cs-001.123.is/9c46e9a3-6a97-4c7f-a7a7-59604ef6b6de_MS.jpg
Hafdís Sigurðardóttir. (Mynd úr einkasafni)

Hafdís þjálfar börn í frjálsum íþróttum einu sinni í viku í Stórutjarnaskóla og hefur vinnu á Akureyri þar sem hún býr. Hafdís æfir á Akureyri undir stjórn Gísla Sigurðssonar og hefur gert síðan 2004 með góðum árangri og stöðugum framförum. Hún æfir með frjálsíþróttafólki úr UFA og ætlar Hafdís ásamt nokkrum úr þeim hóp að fara í æfingabúðir erlendis um páskanna. Að sögn Hafdísar fá þau enga styrki til þess og hefur hópurinn því gripið til þess ráðs að setja upp allskonar frjáraflanir og m.a selja varning, t.d. á facebook, til þess að hafa efni á því að fara í æfingabúðir en það er mjög dýrt. Afreksmannasjóður HSÞ er fjárvana því illa hefur gengið að alfa fjár í hann frá fyrirtækjum og sveitarfélögum á félagssvæði HSÞ.  Þetta ástand hefur gert Hafdísi erfitt fyrir.

http://cs-001.123.is/358968ba-0afc-4e5e-8cd0-d4f80a0f5859_MS.jpg
Hafdís stökk 6.32m í Gautaborg sl. sumar og eins og sést þá trúi hún ekki mínum eigin augum. Hafdís lenti í 2. sæti á mótinu á eftir Karolinu Kluft. (Mynd úr einkasafni)

Mörg frjálsíþróttamót eru á dagskrá innanlands eftir áramót og ætlar Hafdís að taka þátt í þeim öllum. Hafdís ætlar að taka þátt í Áramóti Fjölnis á milli jóla og nýárs, Reykjavík International, sem er alþjóðlegt boðsmót, Stórmóti ÍR, Meistaramóti Íslands og Bikarkeppni FRÍ. Hafdís ætlar sé líka að keppa á einu til tveim mótum á Norðurlöndunum í febrúar, en ójóst er hvaða mót verða fyrir valinu og fer það líka eftir kostnaði en hún þarf að borga slíkar ferðir sjálf eins og reyndar allar aðrar ferðir sem hún fer innanlands sem utan ekki tengjast landsliðinu.

http://cs-001.123.is/DeliverFile.aspx?id=b3942a32-a03a-4c12-9a16-255ca190548bHeimsmeistaramótið í frjálsum íþróttum innanhúss verður haldið í Tyrklandi í mars nk. og Hafdís hefur sett sér það sem markmið að komast þangað en það yrði hennar fyrsta alvöru stórmót. En ljóst er að samkeppnin um að keppa fyrir hönd Íslands á þvi móti er mjög hörð.

B-Olympíulágmarkið í langstökki fyrir Olympíuleikanna, sem verða haldnir í London á næsta ári er 6,60 metrar, en Hafdís á best 6,32 metra og þarf hún að ná Olympíulágmarkinu í síðasta lagi í júlí nk. Hafdís segir það ekki vera takmark hjá sér að ná lágmarkinu fyrir þann frest núna, en hún ætlar sér að ná lágmarkinu fyrir leikanna 2016. En ef henni tekst að ná lágmarkinu á næstu mánuðum ætlar hún að sjálfsögðu að keppa í London.

Áhugasamir geta styrkt Hafdísi til frekari afreka með framlögum, eða með því að kaupa varning af henni í gegnum facebook-síðu hennar.

22.11.2011 21:16

Góður árangur HSÞ á Silfurleikum ÍR

Silfurleikar ÍR voru haldnir síðastliðinn laugardag í Laugardalshöll í Reykjavík. Mótið var haldið til heiðurs afreki Vilhjálms Einarssonar á Ólympíuleikunum í Melbourne árið 1956 þar sem hann vann til silfurverðlauna, fyrstu Íslendinga til að vinna til verðlauna á Ólympíuleikum.

Fjórir vaskir keppendur frá HSÞ tóku þátt í mótinu. Tvö ný héraðsmet litu dagsins ljós og hópurinn vann til tveggja gullverðlauna og fjögurra silfurverðlauna.

 

Elvar Baldvinsson gerði sér lítið fyrir og sigraði bæði í 60m grind og kúluvarpi og varð annar í hástökki í 14 ára flokki pilta.

 

Brynjar Örn Arnarson varð i öðru sæti í 60m grind (tvöfaldur sigur hjá HSÞ) og einnig í öðru sæti í 60m hlaupi en þar bætti hann sitt eigið héraðsmet sem hann átti frá því fyrr á þessu ári. Hann hljóp nú á 7,79 sek.

 

Auður Gauksdóttir náði öðru sæti í hástökki og því fimmta í kúluvarpi í flokki 14 ára stúlkna.

 

Óskar Ásgeirsson varð í 4 sæti í 60 m hlaupi 11 ára og setti þar nýtt héraðsmet en hann hljóp á tímanum 9,18 sek.

 

Til hamingju með glæsilegan árangur!

15.11.2011 17:08

Breyting á æfingartíma hjá 9 ára og yngri á Húsavík

Eitthvað gengur okkur erfiðlega að halda æfingartímunum í Íþróttahöllinni á Húsavík en æfingartími 9 ára og yngri verða sem hér segir: á mánudögum kl. 17:30-18:30 og á föstudögum 16:30-17:30.
Þjálfari er Selmdís Þráinsdóttiremoticon

13.11.2011 22:03

Nóvembermóti HSÞ lokið

í dag fór fram fyrsta mót HSÞ í vetur í Íþróttahöllinn á Húsavík.  Ríflega 60 keppendur tóku þátt allir nema einn úr sýslunni, mjög ánægjuleg þátttaka.  Mótið þóttist takast mjög vel og voru keppendur margir hverjir að bæta sinn persónulegan árangur. 
Tvö hérasmet féllu. Atli Barkarson Völsungi bætti 7 ára gamalt met í kúluvarpi með kasti upp á 8,89 metra og Óskar Ásgeirsson bætti einnig 7 ára gamalt met þegar hann hljóp 40 m á tímanum 6,45 sek.  Auður Gauksdóttir jafnaði héraðsmet í hástökk þegar hún stökk 1,60.  Til hamingju með árangurinn krakkar.
Hægt er að sjá úrslit á heimasíðu frí undir mót -mótaforrit.
Þökkum öllum foreldrum sem aðstoðuðu okkur við mótið kærlega fyrir án þeirra er þetta ekki hægt.

09.11.2011 09:09

Nóvembermót - sjoppa

Frjálsíþróttafélag HSÞ verður með sjoppu í höllinni á nóvembermótinu. Þar verður hægt að kaupa sér samlokur, drykki og eitthvað orkuríkt.

 

 

06.11.2011 15:02

Nóvembermót HSÞ 13. nóvember 2011

Nú styttist í Nóvembermót HSÞ. Það verður að þessu sinni haldið sunnudaginn 13. nóvember í íþróttahöllinni á Húsavík. Mótið byrjar kl. 13:00.

 

Keppt verður í 40 m hlaupi, kúluvarpi, hástökki, langstökki án atrennu og þrístökki án atrennu.

Hægt verður að skrá sig inn á www.fri.is þegar mótið birtist þar eða hjá þjálfara á æfingu á Húsavík.

 

Skráningarfrestur er til hádegis föstudaginn 11. nóvember.

 

Sjáumst sem flest á fyrsta móti vetrarins.

 

31.10.2011 16:52

Frjálsíþróttaæfingar 9 ára og yngri

Æfingar hjá 9 ára og yngri á Húsavík verða 2x í viku
Mánudaga kl. 17:30-18:30 og miðvikudaga kl. 17:30-18:30.
Æfingagjald er 2000 kr. á mánuði og verður sendur út gíróseðill fyrir nóv-des fyrir áramót.

Nóvembermót HSÞ verður í Íþróttahöllinni á Húsavík 13. nóvember nk. nánar auglýst síðar.

Frjálsíþróttafélag HSÞ

25.10.2011 20:20

Vill einhver koma í stjórn frjálsíþróttafélagsins

Okkur bráðvantar einhvern áhugasaman einstakling inn í stjórn frjálsíþróttafélags HSÞ en hún Gunnhildur okkar er að hætta :(

Áhugasamir hafi samband við stjórnarmeðlimi.

Lofum skemmtilegu og gefandi starfi :-)

Friðrika Björk Illugadóttir  894-7609

Ágústa Pálsdóttir   820-2844

Hulda Elín Skarphéðinsdóttir   865-3054

Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir 892-9242



HERÐUBREIÐ

Nafn:

Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir

Um:

Frjálsíþróttafélag HSÞ

Kennitala:

640409-0610

Bankanúmer:

1110-05-400575

Tenglar


Flettingar í dag: 27
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 35
Gestir í gær: 18
Samtals flettingar: 63758
Samtals gestir: 17571
Tölur uppfærðar: 28.1.2012 14:27:01