Frjálsíþróttafélag HSÞ
Fréttir af starfi frjálsíþróttakrakka HSÞ


30.01.2012 16:38

Góður árangur á Stórmóti ÍR 2012

Stórmót ÍR lauk í gær sunnudag og komu HSÞ keppendur heim glaðir og ánægðir eftir vel heppnað mót.

Farið var frá Húsavík með rútu frá Fjallasýn og lagt af stað kl. 13:30. Með í för voru 20 keppendur, 2 fararstjórar, 2 þjálfarar og 2 foreldrar. Ferðin suður gekk afar hægt vegna hálku og hvassviðris en krakkarnir voru mjög þolinmóð og góð þrátt fyrir það. Það var bæði sungið og farið í spurningaleiki. Þá var einnig horft á margar DVD myndir til að drepa tímann.  Komið var í  farfuglaheimililið í Laugardal um kl. 23 eftir 9 og hálfan tíma frá Húsavík.

 

 

Það var góður andi í hópnum og keppnin gekk vel. Margir bættu sinn persónulega árangur og örfá héraðsmet féllu.Hópurinn kom heim með 3 gull, 8 silfur og 3 brons.

Verðlaunasætin voru:

Atli Barkason varð annar í 60  m hlaupi, hástökki og langstökki í 11 ára flokki.

Óskar Ásgeirsson varð þriðji í 60 m hlaupi í 12 ára flokki.

Brynjar Örn Arnarson varð annar í 60 m og 200 m hlaupi í 15 ára flokki. Í 200 m hlaupi setti hann nýtt héraðsmet.

Dagbjört Ingvarsdóttir varð önnur í langstökki 16-17 ára.

Elvar Baldvinsson vann hástökk og 60 m grind, hann varð annar í kúluvarpi og þriðji í langstökki í 15 ára flokki.

Jana Björg Róbertsdóttir vann 800 m hlaup í 15 ára flokki.

Hjörvar Gunnarsson varð þriðji í 400 m hlaupi 16-17 ára.

Auður Gauksdóttir varð í 2-3 sæti í hástökki 15 ára.

Að auki voru margir ofarlega í sínum aldursflokkum, margir bættu sín persónuleg met og allir höfðu gaman af. Hafdís og Hlynur settu héraðsmet í 600 m hlaupi í 13 ára aldursflokki pilta og stúlkna.

Hópurinn sló saman í pizzuhlaðborð á laugardagskvöldið, sumir horfðu á mynd og aðrir voru að spjalla. Lagt var af stað til baka um kl 4 á sunnudag og gekk heimferðin fljótt og vel fyrir sig enda vegir orðnir auðir.  

Sjá nánar úrslit mótsins á www.fri.is

 



HERÐUBREIÐ

Nafn:

Sigþrúður Stella Jóhannsdóttir

Um:

Frjálsíþróttafélag HSÞ

Kennitala:

640409-0610

Bankanúmer:

1110-05-400575

Tenglar


Flettingar í dag: 1
Gestir í dag: 1
Flettingar í gær: 22
Gestir í gær: 11
Samtals flettingar: 69218
Samtals gestir: 19115
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 03:04:46